D bekkurinn
ný síðaD-bekkur
þar sem það var almenn óánægja með þessa síðu í bekknum var tekið á skarið og búið til nýja síðu..
http://www.blog.central.is/d-bekkur_2006
lykilorðið á henni er það sama og hér en notendanafnið annað (sjá á síðunni :D)
bless bless bloggar..
hæhæ blog.central
Næsta bekkjarpartý!D-bekkur
Flestir eru farnir að sofa og eru að undirbúa sig fyrir skólaheimsóknirnar sem standa yfir næstu þrjá daga. Ég er samt að velta fyrir mér hvort það sé ekki kominn tími á að halda annað bekkjarpartý? Helgin 17.-19. nóvember og 24.-26.nóvember eru þær helgar sem koma til greina. Væri mjög gott að ná einu bekkjarpartýi fyrir prófin.Hvernig er stemningin fyrir þessu?
Endilega commentið hvað hentar hverjum. Svo væri ekki verra ef einhver myndi bjóða sig fram til að halda þetta!
Mánudagur til mæðu.....D-bekkur
Hvað segiði?
En ég var að spá í að setja á hittinginn sem við vorum búin að tala um í fyrramálið klukkan 10.00 og fara í upplýsingatækni. Spurning um að hittast bara í Smiðju til að byrja með og reyna svo að komast inn í aðra hvora tölvustofun. Er búin að heyra að það séu aðrir bekkir líka að fara í upplýsingatækni svo við verðum að vera tímanlega til að ná tölvum í þau verkefni sem þarf.
Látið vita af ykkur elskurnar...
Kveðja Hafdís
StyrktartónleikarD-bekkur
Styrktartónleikar
Þuríður Arna er 4 ára, dóttir bróður bestu vinkonu minnar og hún greindist með illvíga flogaveiki í október 2004 og í kjölfarið fundust æxli í höfði hennar sem á þeim tíma voru greind góðkynja. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ekki tekist að vinna bug á meini hennar og nú er svo komi að æxlið er skilgreint sem illkynja og útlit fyrir að frekari meðferðarúrræði séu ekki fyrir hendi. Nú ætlum við að leggjast á eitt og safna fjármunum til að hún og foreldrar hennar geti átt góðar stundir saman.
Tónleikar
Til styrktar og heiðurs Þuríði Örnu Óskarsdóttur í Bústaðakirkju miðvikudaginn 8. nóvember kl.20.
Fram koma
Stebbi og Eyfi, Regína Ósk, Garðar Örn Hinriksson, Signý Sæmundsdóttir, Jóhann Friðgeir, Hanna Þóra og Ólöf Inga Guðbrandsdætur
Ásamt
Guðmundi Sigurðssyni, Vilhelmínu Ólafsdóttur, Matthíasi Baldurssyni og Guðmundi S. Sveinssyni.
Kynnir verður
Anna Björk
Aðgangseyrir 2000 kr
Kæru bekkjarfélagar og aðrir sem lesa þetta, ég vona svo sannalega að þið komið og styrkið þau. Það verður engin formleg áætlun um hitting af minni hálfu allavega en ykkur er náttúrulega velkomið að gera eitthvað úr þessu. Þið getið lesið nánar um veikindi Þuríðar litlu á http://aslaugosk.bloggar.is
Með von um góðar undirtektir
Hafdís
Framhald af Leikhúsferð!!!!!!!!D-bekkur
Kennó-ferð á Patrek 1,5 og Tapashlaðborð á Veagmótum þann 10. nóvember (föstudagur) 2006!Jæja svona standa þá málin:
Matur og leikhúsferð:
Gunnar, Þórunn, Tóta, Aldís og Tinna
Leikhús
Erla Bára (er að passa bróður minn þessa viku og helgi)
Það er enn þá hægt að skrá sig og ég vona bara að miklu fleiri sjái sér fært að koma með!
Við erum búin að senda póst til Elvars með þessum nöfnum en eins og ég segi þá er ennþá hægt að skrá sig!
Meira um leikritið Patrek 1,5
Erla - Gríska Gyðjan
Leikhúsferð!!!!!!!!!!D-bekkur
Ég er svoddan leikhúsfrík og ég sá að Kennó er að fara í hópferð út að borða á Vegamót og svo á leikritið Patrekur 1,5 í Þjóðleikhúsinu föstudaginn 10. nóvember. Það eina sem ég veit um þetta elikrit er að það inniheldur homma!Ég var að spá í hvort við ættum ekki að gera bekkjarferð úr þessu og fara á þetta leikrit og jafnvel í matinn líka?
Endilega skráið ykkur í commentin og ég skal svo senda skráning@khi.is listann yfir alla! Málið er nebbla að það er síðasti dagur í dag til að skrá sig og þess vegna sendi ég öllum SMS!
Þið verðið að taka fram hvort þið ætli í bæði eða bara leikritið!
Hér með skrái ég mig á listann:
Erla Bára Ragnarsdóttir
Elgg í upplýsingatækniD-bekkur
Góðu samnemendur.
Ég hvet alla (í bekknum) sem hafa farið í tíma hjá Salvöru Gissurardóttur í upplýsingatækni að skrá sig í nýtt samfélag sem hún Tóta bjó til handa okkur og heitir því skemmtilega nafni
D bekkur
Þið hin sem ekki eruð búin að fara í tíman (sem var nokkuð skemmtilegur skal ég ykkur segja) fattið samstundis við hvað er átt.. og hvet ykkur þá að join-a
Annars styð ég tillögu Jóhönnu um bekkjarpartý bráðlega (mér finnst sunnudagur vera málið) og hvet einnig alla til að koma skoðun sinni um það á framfæri í færslu hennar hér að neðan..
kveð þá í bili
Ásta Björg
annað partýD-bekkur
jæja fólk, eru ekki allir orðnir stressaðir yfir því hvað lítið er eftir af skóloanum.... bara rúmur mánuður í próf...:)
hvernig lýst ykkur á að halda einhverntíman á næstunni annað bekkjarpartý....? við gætum hist heima hjá mér....
endilega segið skoðun ykkar á því:)
kv. Jóhanna
jæja fólkD-bekkur
ég vil endilega benda á að þið getið sett inn fyrirlestrana úr málstofunum inná síðuna, svo við hin getum notið góðs af þeim.....
en já ég gær fékk ég smá jólatilfinningu og fann hérna smá stef úr frægu jólalagi sem ég vill endilega deila með ykkur,, og mjög fyndið að þegar þið eruð búin að hlusta einu sinni að ýta aftur á GO takkan og hlusta aftur vel, þá spilast lagið aftur á bak og kemur svoldið fyndin texti út úr því.... mæli með að þið leggið vel við hlustir:)
http://pub.sinuspl.net/flash/Jingle_Bells_Reversed.swf
gjörið svo vel:)
Fimmtudagur til fundar!D-bekkur
Ef það er einhver sem er stakur í þessari blessuðu þroskasálfræði og er í vandræðum með að finna sér "partner", þá gæti hann setið upp með mig. Mig vantar einhvern með mér í þessa ritgerð.Vonandi er einhverjir að lesa þessa síðu, sem ég efast reyndar um, svo maður finni sér nú einhvern með sér.
Kv,
Gunnar